18.6.2008 | 14:24
18 hjóla?
Ekki er ég fróður um bíla en ég myndi halda að 18 hjóla trukkur væri túlkun á hversu mörg dekk séu undir trukknum.
Samkvæmt fréttinni er talað um 18 hjóla trukk með aftan-í-vagn. Samkvæmt minni skilgreiningu er hér á ferðinni 10 hjóla trukkur með aftaní vagn og vagninn sjálfur telur svo (samkvæmt því sem ég sé á myndinni og fæ staðfestingu á frá öðrum fréttavef) 12 dekk. Er það þá ekki 22 hjóla trukkur?
Þurfa blaðamenn mbl.is ekki að fara að setja sér smá metnað í starfi?

Átján hjóla trukkur á hliðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
djös kröfur eru þetta..
Óskar Þorkelsson, 18.6.2008 kl. 14:26
Reyndar eru 8 hjól aftast, 8 hjól í miðjunni og tvö að framan 8+8+2= 18 hjól og ef vagninn er 10 hjól eins og þú segir þá eru þetta 28 hjól... bara stoppa og skoða málið...
Guðrún 18.6.2008 kl. 14:41
Vagninn hefur þrjá öxla, hver með fjögur dekk. Bíllinn sjálfur með þrjá öxla einnig, tveir með fjórum dekkjum og svo einn með tveimur. Dæmið er því eftirfarandi:
3*4+2*4+1*2 = 12+8+2 = 22
Þetta hljómar eins og reikningsdæmi fyrir 10 ára krakka en samt tókst nánast öllum fréttamönnum að gera þetta vitlaust :)
Tóti 18.6.2008 kl. 22:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.